Helena Sverrisdóttir og Good Angels urðu í dag bikarmeistarar í Slóvakíu eftir 76-58 sigur gegn MBK Ruzomberok í úrslitaleik keppninnar.
Helena skoraði 8 stig í leiknum en Good Angels höfðu tök á þessum frá upphafi til enda og leiddu t.d. 41-17 í hálfleik.
Gengi liðsins er svo ekkert til að kvarta yfir í deildarkeppninni þar sem liðið hefur unnið alla 17 deildarleiki sína þetta tímabilið.