spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaGóður leikur Tryggva ekki nóg

Góður leikur Tryggva ekki nóg

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap gegn Froca Lleida í ACB deildinni á Spáni í dag, 84-66.

Á rúmum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 9 stigum, 13 fráköstum, stoðsendingu og 3 vörðum skotum, en hann var framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum með 24 framlagsstig.

Bilbao eru eftir leikinn í 16. sæti deildarinnar með þrjá sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -