Elvar Már Friðriksson og PAOK máttu þola tap í kvöld gegn Panathinaikos í grísku úrvalsdeildinni, 73-89.
Elvar Már lék rúmar 35 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 13 stigum, 9 stoðsendingum og 2 stolnum boltum, en hann var framlagshæstur í liði PAOK í leiknum.
Eftir leikinn er PAOK í 8. sæti deildarinnar með 28 stig.