spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaGnúpverjaævintýrið á enda

Gnúpverjaævintýrið á enda

Gnúpverjar hafa dregið lið sitt úr keppni í 1. deild karla fyrir næstu leiktíð eftir frábær síðustu tímabil. Liðið gaf frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld þar sem liðið staðfestir þetta og segir ævintýrinu lokið. 

 

Þjálfari liðsins og stofnandi Máté Dalmay tók við liði Hamars í sumar en ástæða þess að liðið ætlar ekki að taka þátt á næsta tímabili er gríðarlegur kostnaður. 

 

Gnúpverjar fóru upp um tvær deildir á tveimur árum áður en liðið lék í 1. deild á síðustu leiktí. Þar endaði liðið í sjötta sæti með tíu sigra en liðið kom mikið á óvart. 

 

Yfirlýsingu Gnúpverja má finna í heild sinni hér að neðan:

 

Nú er ljóst að lið Gnúpverja mun ekki taka slaginn í 1.deildinni á komandi leiktímabili. Eins og öll ævintýri þá tekur þetta einnig enda. Við, leikmenn og stjórn Gnúpverja viljum þakka kærlega fyrir allann þann stuðning, áhuga og velvild í okkar garð sem körfuboltafjölskyldan, vinir, fjölskyldumeðlimir, fyrirtæki og almenningur hafa sýnt okkur. 

 

1.deildin á komandi leiktímabili er eins og allir sem fylgjast með vita orðin það kostnaðarsöm að ekki gengur að taka þátt á þeim forsendum sem lið Gnúpverja var byggt upp á. Liðið hefur lítið bakland og frá fyrsta degi hafa leikmenn og þjálfarar greitt nánast allann kostnað úr eigin vasa. Nú er svo komið að við treystum okkur ekki í að taka þátt, enda verður ferðakostnaður í hæstu hæðum í 1. deildinni á næsta tímabili.

 

Þetta hafa verið frábær ár, sigur í 3.deildinni, 2.sætið eftir úrslitakeppni í 2.deildinni, og svo loks 10 sigrar og 6.sætið í 1.deildinni á nýliðnu tímabili.

 

Takk fyrir okkur!

Fyrir hönd Gnúpverja,

Hraunar Karl Guðmundsson

Fréttir
- Auglýsing -