16. umferð Subwaydeildar karla lauk í kvöld með leik Stjörnunar og Vals. En Stjarnan sló einmitt Valsmenn út í bikarkeppninni og Valsmenn væntanlega viljað svara fyrir þann leik. Stjarnan þurfti nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um að komast í úrslitakeppnina. Leikurinn sjálfur var mjög skemmtilegur og spennandi, Valsmenn reyndust sterkari á lokametrunum og unnu 81-85.
Karfan spjallaði við Ægi Þór Steinarsson þjálfara Stjörnunnar eftir leik í Umhyggjuhöllinni.