Undir 18 ára stúlknalið Íslands mátti þola tap í dag fyrir Finnlandi í lokaleik sínum á NM 2022. Liðið hafnaði því í þriðja sæti mótsins, með tvo sigra og þrjú töp líkt og Danmörk, en vegna innbyrðisstöðu gegn þeim var Ísland fyrir ofan. Norðurlandameistarar voru Svíþjóð og í öðru sæti varð Finnland.
Karfan spjallaði við Gígju Rut Guðjónsdóttur leikmann liðsins eftir verðlaunaafhendingu í Kisakallio.