„Við erum rétt byrjaðir í framleiðsluferlinu," segir framleiðandinn Erlingur Jack Guðmundsson hjá Ogfilms um væntanlega heimildamynd um körfuboltakappann Örlyg Aron Sturluson. Stöð 2 hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn á myndinni.
Örlygur þótti mjög efnilegur körfuboltakappi en hann lést af slysförum fyrir 12 árum síðan, þá 18 ára gamall. Örlygur spilaði með körfuboltaliði Njarðvíkur þar sem hann þótti í sérflokki sem leikstjórnandi. Samstarfsfélagi Erlings hjá Ogfilms, Garðar Örn Arnarsson, ætlar leikstýrir myndinni. „Garðar er frá Reykjanesbæ og langaði einfaldlega að gera mynd til að heiðra minningu Örlygs, en hann var einn af bestu körfuboltamönnum á Íslandi þegar hann lést," segir Erlingur en áætlað er að myndin verði sýnd fyrir lok þessa árs.