spot_img
HomeFréttirGeorgía Olga og Davíð Tómas á Scania Cup

Georgía Olga og Davíð Tómas á Scania Cup

15:57 

{mosimage}

Systknin Georgía Olga Kristiansen og Davíð Tómas Tómasson munu dæma á Scania Cup í Södertålje í svíþjóð núna um páskana. Systkinin eru í hópi fjögurra dómara sem halda utan. Frá þessu er greint á www.kr.is/karfa  

Georgía Olga hefur fengið krefjandi verkefni í vetur og ákvað hún að hætta að leika með meistaraflokk félagsins til að geta stundað dómarastörfin, Davíð Tómas bróðir hennar tók prófið í vetur og hefur fengið töluvert af leikjum og þótt standa sig vel.  

Það er aðdáunarvert að sjá þau svona metnaðarfull í stöfum sínum og nú halda þau á Scania Cup ásamt öðrum íslenskum dómurum og munu þar fara á námskeið sem er alltaf fyrir mótið og síðan dæma á mótinu sjálfu. Það verður gaman að fylgjast með þeim og sjá hvaða leiki þau munu fá.

 www.kr.is/karfa

Fréttir
- Auglýsing -