spot_img
HomeFréttirGatorade körfuboltabúðir 8.-11. júní

Gatorade körfuboltabúðir 8.-11. júní

Hinar geysivinsælu æfingabúðir Ágústs Björgvinssonar meistaraflokksþjálfara hjá Val. Nú í samstarfi við Gatorade, fara fram í Vodafonehöllinni Hlíðarenda dagana 8. Júní – 11. júní næstkomandi. Búðirnar eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.

 

Æfingabúðirnar hafa verið haldnar frá árinu 2001 og eru því 14 ára í ár. Á þessum 14 árum hafa yfir eittþúsund leikmenn sótt búðirnar. Metþátttaka var júní 2008 þegar rúmlega 140 leikmenn sóttu búðirnar sem voru haldnar í DHL-höll KR-inga.

 

Vodafonehöllin er eitt glæsilegasta íþróttahús landsins og aðstaðan eins og best verður á kosið, en alls eru 22 körfur í húsinu og því möguleiki á að spila á 6 völlum í einu.

 

Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum en meðal búða sem hann hefur þjálfað eru í Duke University og Five Star Basketball Camp í Bandaríkjunum.

 

Þjálfarar – Undanfarin ár hafa margir af færustu þjálfurum landsins þjálfað í búðunum og verður engin undantekning á því í ár.

 

Þeir krakkar sem taka þátt fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu mjög hæfra þjálfara sem munu aðstoða krakkana þessa fimm daga sem búðirnar fara fram. Körfuboltabúðirnar eru á milli kl 17.00 og 20.30 frá mánudeginum 8. júní til fimmtudags 11. júní og verðið er einungis 6.500 krónur. Frá klukkan 16.00 til 17.00 gefst leikmönnum færi á að hitta þjálfara og vinna í einstaklingsatriðum.

 

Körfuboltabúðir Gatorate 2015:

Frá 8. júní til 11. júní 17.00-20.30

12 til 18 ára stelpur og strákar

Verð 6.500 krónur

Gatorate bolur og drykkur fyrir  alla þátttakendur

 

Skráning og upplýsingar á [email protected]

Frekari upplýsingar veita : Ágúst Björgvinsson 696-9387

Fréttir
- Auglýsing -