Óhætt er að segja að lið Keflavíkur hefur komið skemmtilega á óvart í vetur í Dominosdeild kvenna. Liðinu var ekki spáð neinu glansgengi í vetur þar sem liðið er jú kornungt. En því má ekki gleyma að liðið hefur verið lengi saman, stúlkur sem þekkja hvor aðra vel á vellinum og aðalsmerki þeirra, varnarleikurinn að hætti þjálfarans, Sverris Þórs Sverrissonar.
Í viðtali við VF.is þar sem þær Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir og Birna Benónýsdóttir eru teknar á tal kemur fram að þær telji sig vel í stakk búnar að axla þá ábyrð sem fylgir að leika með meistaraflokki liðsins.
Sjá má og lesa viðtalið hér.