Leikmaður Grindavíkur í Subway deild karla Gaios Skordilis hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd fyrir háttsemi sína í leik liðsins gegn Njarðvík þann 4. nóvember.
Hér fyrir neðan má lesa úrskurð nefndarinnar, en hún komst einnig að niðurstöðu í einu öðru máli í vikunni.
Agamál 35/2022-2023
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gkay Gaios Skordilis, sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvíkur og Grindavíkur, Subwaydeild karla, sem fram fór þann 4. nóvember 2022.
Úrskurð má lesa í heild sinni hér
Agamál 37/2022-2023
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærða, Madison Marie Pierce, leikmaður Aþenu/Leiknis/UMFK, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Aþena/Leiknir/UMFK gegn Ármanni, sem fram fór þann 5 nóvember 2022.