Þór úr Þorlákshöfn starir nú enn einu sinni framan í þá staðreynd að vera án Grétars Inga Erlendssonar en meiðsli í hæl eru að hrjá leikmanninn. Thorkarfa.com ræddi við Grétar um meiðslin.
Í frétt Thorkarfa.com segir Grétar m.a.
,,Læknarnir treysta sér ekki til að segja til um hversu lengi maður verður frá og segja að það geti verið frá nokkrum vikum upp í marga mánuði. Þá eru dæmi um að menn hafi aldrei náð sér góðum. Ég fékk þá til að gefa mér einhverja vísbendingu hvenær ég gæti hugsanlega byrjað aftur og eftir að ég gekk á þá tippuðu þeir á 6 vikur.”
Mynd/ Davíð Þór