spot_img
HomeFréttirFyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins í tæp 5 ár

Fyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins í tæp 5 ár

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir því danska í æfingaleik á Ásvöllum klukkan 19.15 á miðvikudagskvöld og það er óhætt að segja að stelpurnar okkar bíði spenntar eftir því að spila á heimavelli. Leikurinn við Dani verður nefnilega fyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins frá 29. ágúst 2009 eða frá því þegar íslenska liðið mætti sterku liði Svarfjallalands í undankeppni EM. Sá leikur fór fram í Smáranum í Kópavogi. www.kki.is greinir frá.
 
 
Fimm leikmenn íslenska liðsins í dag spiluðu einnig þennan leik fyrir tæpum fimm árum en það eru fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Kristún Sigurjónsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Ragna Margrét Brynarsdóttir.
 
Stelpurnar töpuðu leiknum á móti Svartfjallandi 62-77 og var Helena Sverrisdóttir stigahæst með 23 stig.
 
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölda landsleikja sem stelpurnar í landsliðinu í dag hafa spilað á heimavelli á sínum landsliðsferli en það er mjög gaman fyrir þær að fá á ný tækifæri til að spila fyrir íslenska áhorfendur.
 
Landsleikir leikmanna hópsins á Íslandi:
 
Hildur Sigurðardóttir 17
Helena Sverrisdóttir 11
María Ben Erlingsdóttir 10
Kristrún Sigurjónsdóttir 10
Bryndís Guðmundsdóttir 7
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 5
Pálína Gunnlaugsdóttir 5
Gunnhildur Gunnarsdóttir 0
Hildur Björg Kjartansdóttir 0
Marín Laufey Davíðsdóttir 0
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 0
Guðbjörg Sverrisdóttir 0

Mynd/ KKÍ: Kvennalandslið Íslands á Smáþjóðaleikunum 2013
 
  
Fréttir
- Auglýsing -