spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaFyrrum liðsfélagi íslensks landsliðsmanns til nýliða ÍR

Fyrrum liðsfélagi íslensks landsliðsmanns til nýliða ÍR

ÍR hefur samið við Matej Kavas fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.

Matej er 28 ára gamall Slóveni sem kemur frá liði St. Poelten í Austurríki þar sem hann skilaði 17 stigum og tæpum 6 fráköstum í leik á síðustu leiktíð. Ásamt því að hafa spilað þar hefur hann einnig verið á mála hjá liðum ásamt því að hafa á sínum tíma leikið fyrir Nebraska Cornhuskers í bandaríska háskólaboltanum. Hjá Nebraska var Matej liðsfélagi landsliðsmanns Íslands Þóris Guðmundar Þorbjarnarsonar.

Fréttir
- Auglýsing -