Keflavík hefur fengið til sín Nigel Pruitt samkvæmt félagaskiptasíðu KKÍ.
Nigel er 30 ára bandarískur framherji með þýskt vegabréf sem ætti að vera íslenskum aðdáendum kunnugur, en hann lék fyrir Þór í Bónus deildinni á síðustu leiktíð. Þá skilaði hann 18 stigum, 7 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Ásamt því að hafa áður leikið á Íslandi hefur Nigel leikið í Austurríki, Hollandi, Spáni og Þýskalandi sem atvinnumaður.