spot_img
HomeFréttirFyrrum leikmaður Grindavíkur semur í Skagafirðinum

Fyrrum leikmaður Grindavíkur semur í Skagafirðinum

Nýliðar Tindastóls hafa samið við Edyta Falenczyk um að leika með kvennaliðinu í Bónusdeildinni á komandi tímabili.

Edyta er 30 ára 180 cm pólskur framherji sem kemur til Tindastóls fá Neptunas í Litháen, en ásamt því að hafa leikið þar og í heimalandinu hefur hún verið á mála hjá liðum í Tékklandi og á Íslandi, en tímabilið 2021-22 lék hún fyrir Grindavík.

“Edyta hefur reynslu úr efstu deild á Íslandi. Hún er öflugur fjarki sem getur teygt á gólfinu og hún er góð skytta auk þess að vera góður varnarmaður og frákastari. Það er eitthvað sem við þurfum til að vinna leiki” segir Israel Martin þjálfari liðsins

Edyta segist hlakka mikið til að upplifa Norðurlandið en hún hefur áður spilað eitt tíambil með Grindavík í efstu deild kvenna. “Íslenskur kvennakörfubolti er harður og það er mikil samkeppni, að mínu mati. Mér finnst Martin þjálfari Tindastóls hafa frábærar hugmyndir um hvernig best er að nýta einstaklingsgæði hvers og eins til að búa til vel spilandi lið og ég hlakka til að sýna liðinu og áhorfendum vilja okkar til að berjast og vinna leiki”.

Dagur Þór, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir það ánægjuleg tíðindi að fá Edytu til liðsins, “Við höfum mikinn metnað til að láta finna vel okkur á fyrsta ári í langan tíma í efstu deild kvenna og Edyta mun án efa nýtast liðinu vel.”

Mynd / Tindastóll FB

Fréttir
- Auglýsing -