Á komandi keppnistímabili 2020-2021 mun verða boðið upp á keppni í 2. deild kvenna og 4. deild karla. Leikið hefur verið í 2. deild kvenna nokkur síðustu tímabil, en ákveðið hefur verið að breyta fyrirkomulagi deildarinnar til að auðvelda fleirum að taka þátt.
Í báðum deildum verður leikið helgarnar 17.-18. október 2020 og 17.-18. apríl 2021.
- skráning fyrir fyrri helgina stendur yfir 10.-30. september 2020
- skráning fyrir seinni helgina stendur yfir 10.-30. mars 2021
- leikreglur
- leiktími: 2×7 mínútur með gangandi klukku
- skiptingar: minniboltaskiptingar
- fjöldi leikja: 5-7 á lið
- framlenging: verði jafnt gildir fyrsta karfa sem sigurkarfa (gullkarfa)
- leikmönnum í Domino‘s og 1. deildum karla og kvenna er óheimilt að keppa í 2. deild kvenna og 4. deild karla
Allar frekari upplýsingar um fyrirkomulag má finna hér fyrir neðan.