Furman Paladins sigruðu fyrsta leik sinn á CollegeInsider.com mótinu sem þeim var boðið á eftir tapið í undanúrslitum SoCon keppninnar fyrr í mánuðinum. Kristó og félagar sigruðu í þetta sinn University of Louisiana-Monroe 57-58 á flautukörfu í lok leiks.
Það var annars árs leikmaðurinn Daniel Fowler sem náði sóknarfrákasti og kom upp sniðskoti á körfuna rétt áður en tíminn rann út til þess að koma Furman yfir og sigra leikinn.
Kristófer lauk leik með 11 stig, 9 fráköst (þar af 5 í sókn), 2 varin skot og 3 stolna bolta.
Myndir: Furman