Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu Gottingen í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 83-109.
Martin lék rúmar 14 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 12 stigum, en þau skoraði hann með fullkomna, 100% skotnýtingu.
Eftir leikinn er Alba Berlin í 14. sæti deildarinnar með fjóra sigra og sex töp það sem af er tímabili.