spot_img
HomeFréttirFriðrik Ingi hættur með Njarðvík

Friðrik Ingi hættur með Njarðvík

Friðrik Ingi Rúnarsson mun ekki koma til með að stjórna Njarðvíkingum en samkomulag hefur náðst um það að Friðrik Ingi stígi til hliðar sem þjálfari beggja meistaraflokka liðsins. Friðrik Ingi hefur þjálfað bæði karla- og kvennalið Njarðvíkur sl. tvö keppnistímabil

 

"Sjálfur var Friðrik ekki ákveðinn um framhaldið enda vita allir sem til körfuboltans þekkja að starf þjálfara í íslenskum körfuknattleik er ekki ofarlega á blaði þegar að launakjörum kemur. Starfið er fyrir vikið vanþákklát sem í tilfelli Friðriks er grátlegt enda hæfur þjálfari sem leggur ávallt allt sitt í verkefni líðandi stundar. Breytingarnar sem nú fara fram eru gerðar í bróðerni og er það von mín að Friðrik komi áfram að þjálfun í yngri flokkum félagsins, þá í hlutastarfi. Tíminn verður að leiða það í ljós hvort það henti Friðriki Inga á þessum tímamótum. Ef af slíku samstarfi yrði væri það félaginu okkar til mikils happs." segir Gunnar Örlygsson formaður KKD UMFN í tilkynningu frá félaginu.

 

 Nú standa yfir samningaviðræður við leikmenn félagsins og þá um leið leit af nýjum þjálfara liðsins. 

Fréttir
- Auglýsing -