spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaFramlengir við Grindavík til 2026

Framlengir við Grindavík til 2026

Daniel Mortensen hefur framlengt samningi sínum við Grindavík til næstu tveggja ára. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Daniel kom fyrst til Íslands til Þórs tímabilið 2021-22 þar sem hann var valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar. Þá var hann lykilmaður í spútnikliði Hauka sem endaði í þriðja sæti Subway deildarinnar 2022-23. Hann skipti svo yfir til Grindavíkur fyrir nýafstaðið tímabil, en þar fór lið hans alla leið í oddaleik úrslita þar sem þeir töpuðu fyrir Val.

Fréttir
- Auglýsing -