spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaFramlengir í Skógarselinu

Framlengir í Skógarselinu

Nýliðar ÍR hafa framlengt samningi sínum við Zarko Jukic fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla. Zarko kom til ÍR á síðasta tímabili og var mikilvægur í liðinu sem vann sig aftur upp í Bónus deildina eftir sigur í úrslitakeppni.

Zarko er 31 árs danskur framherji sem á að baki nokkuð langan feril sem atvinnumaður, en hann hefur áður leikið fyrir félög í heimalandinu, á Spáni, í Svíþjóð, í Bretlandi og þá var hann með KR árið 2021.

Fréttir
- Auglýsing -