Íslandsmeistarar Vals hafa framlengt samninga sína við Frank Aron Booker, Kristinn Pálsson og Hjálmar Stefánsson til næstu tveggja ára.
Íslandsmeistararnir tryggðu sér titilinn á nýjan leik eftir sigur gegn Grindavík í oddaleik úrslita nú í vor, en á síðustu þremur tímabilum hefur liðið í þrígang farið í úrslit og unnið titilinn tvisvar. Hjálmar, Kristinn og Frank Aron voru allir í lykilhlutverkum með liðinu á síðasta tímabili, en Kristinn var valinn besti leikmaður deildarinnar eftir að leiktíð lauk.