Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola fimm stiga tap gegn Breogan í ACB deildinni á Spáni í dag, 76-71.
Á rúmum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 9 stigum, 10 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta, en hann var framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum með 18 framlagsstig.
Eftir leikinn er Bilbao í 14. sæti deildarinnar með sex sigra og tólf töp það sem af er tímabili.