spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karla„Framlag hans til körfuboltans í Hólminum hefur verið ótrúlegt“

„Framlag hans til körfuboltans í Hólminum hefur verið ótrúlegt“

Ingi Þór Steinþórsson er nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá KR en hann tekur við stýrinu af Finn Frey Stefánssyni sem unnið hefur Íslandsmeistaratitil fimm ár í röð. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi nú í hádeginu.

 

Ingi Þór hefur þjálfað bæði lið Snæfells frá árinu 2009 og gerði kvennaliðið að þreföldum Íslandsmeisturum auk þess sem karlalið félagsins varð einu sinni Íslandsmeistari. Hann hefur því náð mögnuðum árangri í Stykkishólmi og því stórt skarð hoggið í lið Snæfells. 

 

Snæfell gaf út tilkynningu í hádeginu þar sem Inga var þakkað fyrir framlag sitt til félagsins. Tilkynninguna má finna í heild sinni hér að neðan:

 

Kæru Snæfellingar

Það tilkynnist hér með að Ingi Þór Steinþórsson hefur látið af störfum sem þjálfari UMF. Snæfells í Stykkishólmi.

 

Ingi Þór hóf störf hjá félaginu haustið 2009 og þjálfaði báða meistaraflokkana ásamt því að halda utan um yngriflokka félagsins.

 

Það er skemmst frá því að segja að framlag hans til körfuboltans hér í Hólminum bæði innan vallar sem utan hefur verið ótrúlegt og eftir því tekið.

 

Fyrir hönd leikmanna, stuðningsfólks, styrktaraðila sem og stjórnar þakka ég Inga Þór og fjölskyldu fyrir mikinn metnað og elju í öllum sínum verkum til félagsins.

 

Um leið óskum við þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

 

Stykkishólmi 12. júní 2018
Gunnar Svanlaugsson, formaður kkd Snæfells

Fréttir
- Auglýsing -