Kristinn Pálsson og félagar í Aris Leeuwarden máttu þola tap í kvöld fyrir Spirou í BNXT Gold deildinni í Hollandi/Belgíu, 83-78.
Á 29 smínútum spiluðum í leiknum skilaði Kristinn 23 stigum, 3 fráköstum, 6 stoðsendingum og 2 stolnum boltum, en hann var framlagshæsti leikmaður Aris í leiknum.

Það hefur lítið gengir hjá Aris síðan að deildinni var getuskipt í tvennt nú í mars, en þeir eru sem stendur í tíunda og neðsta sæti deildarinnar enn án sigurs eftir fyrstu fimm leikina.