Fókus kom saman og fór yfir síðustu leiki Subway deildar kvenna og velti fyrir sér stöðu hvers liðs í deildinni og hvernig framhaldið verður. Þá er einnig spáð í spilin í fyrstu deild kvenna.
Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag voru ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur Baldursson og þjálfari Hamars/Þórs í fyrstu deildinni Hallgrímur Brynjólfsson.
Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway.