spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaFlorijan Jovanov til liðs við Hamar

Florijan Jovanov til liðs við Hamar

 

Florijan Jovanov skrifaði í dag undir tveggja ára samning við lið Hamars, en hann lék með liði FSu á síðasta tímabili í 1.deildinni.

 

Florijan er fjölhæfur 27 ára leikmaður sem getur bæði spilað á vængnum og leyst stöðu framherja. Á síðasta tímabili skoraði Florijan að meðaltali 13,7 stig í leik og tók 7,5 fráköst.

 

 

Nýráðinn þjálfari Hamars, Máté Dalmay hafði þetta að segja um félagaskiptin:

¨Við teljum Florijan vera einn af þeim leikmönnum sem eiga hvað mest inni frá því á síðasta tímabili. Í góðu flæði og skipulagi þá getur hann orðið algjör lykill að góðum árangri í vetur.¨

Fréttir
- Auglýsing -