Að sjálfsögðu var Karl West réttur maður á réttum stað og náði öllu á myndband þegar Tómas Heiðar Tómasson setti magnaða flautukörfu gegn Tindastól í kvöld og tryggði Fjölni spennusigur. Dalhúsadrengir eru því áfram á toppi Domino´s deildar karla og nú ásamt Grindavík, Snæfell og Stjörnunni.