Lokaleikur fyrstu umferðar Subway deildar karla fer fram í dag. Nýliðar Álftnesinga taka á móti Íslandsmeisturum Tindastóls kl. 19:15 í Forsetahöllinni. Leikurinn sá síðasti í þessari fyrstu umferð þar sem að Tindastóll tók þátt í forkeppni FIBA Europe Cup í síðustu viku.
Þá eru þrír leikir í annarri umferð Subway deildar kvenna. Nýliðaslagur er á Akureyri þar sem Þór tekur á móti Snæfell, Breiðablik fær Keflavík í heimsókn í Smárann og í Grindavík taka heimakonur á móti Íslandsmeisturum Vals.
Leikir dagsins
Subway deild karla
Álftanes Tindastóll – kl. 19:15
Subway deild kvenna
Þór Akureyri Snæfell – kl. 18:15
Breiðablik Keflavík – kl. 19:15
Grindavík Valur – kl. 19:15