Stelpubúðir KKÍ og Dominos hafa verið í gangi í dag í Toyotahöllinni í Keflavík og Karfan.is fengu sendar myndir frá nýjasta ljósmyndarnum í teymi okkar. Búðunum var stjórnað af þjálfurum og leikmönnum A landsliðs kvenna og ekki var að sjá annað en að stúlkurnar sem mættu skemmtu sér konunglega en ríflega um 100 stelpur voru mættar í æfingagallanum þetta skiptið. Myndir sem að Helgi Rúnar Bragason tók í Keflavík í dag er hægt að skoða með því að smella hér.