Mikið hefur verið um frestanir og tímabreytingar á leikjum Dominos og fyrstu deildar kvenna. Einum fjórum leikjum hefur í heildina verið seinkað eða færðir seinna í dag.
Hérna er yfirlit yfir leiki dagsins
Lengsta ferðalag dagsins var þó ferð Fjölnis til Sauðárkróks þar sem þær mæta heimakonum í Tindastól kl. 16:00. Má segja að liðið sé einskonar sigurvegari hvernig sem leikurinn sjálfur fer, því þrátt fyrir þetta langa ferðalag, þá komst Fjölnir á leiðarstað og fer leikurinn fram á settum tíma.
Bein útsending verður frá leiknum á Tindastóll Tv, en hægt er að skoða það betur hér.