Fjölnir hefur framlengt samninga sína við Heiði Karlsdóttur, Stefaníu Teru Hansen og Bergdísi Önnu Magnúsdóttur fyrir komandi tímabil í Subway deild kvenna.
Allar hafa þær verið viðloðandi yngri landslið Íslands nú í sumar. Heiður og Stefanía voru með undir 20 ára liðinu og þá var Heiður einnig með undir 18 ára liðinu ásamt Bergdísi Önnu nú í sumar.