Fjölnir hefur skrifaði undir nýjan samning við sex af efnilegustu leikmönnum meistaraflokks karla um þess efnis að spila með liðinu á næsta tímabili. Um er að ræða Rafn Kristján Kristjánsson, Fannar Elí Hafþórsson, Guðmundur Aron Jóhannesson, Garðar Kjartan Norðfjörð, Kjartan Karl Gunnarsson og Brynjar Kári Gunnarsson sem er einmitt þessa dagana í landsliðsverkefni. Áður höfðu Viktor Máni Steffensen og Ísak Örn Baldursson skrifað undir nýjan samning.
Fjölnir lék um laust sæti um að komast í Subway deildina í vor en tapaði eftir fimm leikja rimmu þar sem Hamar fór með sigur og vann sér laust sæti í Subway deildinni.