spot_img
HomeFréttirFjögurra liða úrslit í Euroleague í dag

Fjögurra liða úrslit í Euroleague í dag

09:53

{mosimage}
(CSKA voru Evrópumeistarar 2006)

Í dag verða fjögurra liða úrslit í Evrópudeildinni leikin í Aþenu, höfuðborg Grikklands.

CSKA Moskva og Unicaja Malaga mætast klukkan 14:30 í fyrri leik dagsins. Seinni leikurinn er á milli heimamanna í Panthinaikos og Tau Ceramica frá Spáni og hefst hann klukkan 17:30.

Allt eru þetta stjörnum prýdd lið. Þar má nefna leikmenn eins og Luis Scola, Theodoros Papaloukas, Jiri Welsch, Oscar Torres, Tony Delk og marga fleiri.

Luis Scola, segir í viðtali að hann og liðsfélagar sínir í Tau Ceramica séu bjartsýnir fyrir leikinn í dag þrátt fyrir að þurfa að leika gegn heimamönnum. Scola hefur áður unnið stóra sigra á þessum leikvangi en hann varð Ólympíumeistari með Argentínu í O.A.K.A. höllinni árið 2004.

Ettore Messina, þjálfari CSKA Moskvu, segir í viðtali á heimasíðu FIBA að þrátt fyrir að margir telji líklegt að CSKA komist í úrslit þá megi alls ekki vanmeta lið Unicaja Malaga. CSKA var ekki talið líklegt til þess að sigra í fyrra en tókst það engu að síður ásamt því að vinna rússneska titilinn.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -