Við hátíðlega athöfn í Kjarnanum á Gamlársdag afhenti Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood, Ungmennafélaginu Tindastóli, nýja 17 farþega rútu að gjöf. Það var Gunnar Þór Gestsson sem tók við gjöfinni fyrir hönd félagsins. www.tindastoll.is greinir frá.
Rútu þessari er ætlað að auka öryggi keppenda á vegum Tindastóls, sem og að minnka ferðakostnað iðkenda. Fjölskyldur og heimili hafa ekki farið varhluta af auknum ferðakostnaði sem hlýst m.a. af auknum álögum ríkisins á bensín og olíu.
Ljómandi umfjöllun um málið er á feykir.is þar sem m.a. má heyra ávörp þeirra Jóns Eðvalds og Gunnars Þórs.