spot_img
HomeFréttirFinnur Atli fór meiddur út af velli gegn Hetti

Finnur Atli fór meiddur út af velli gegn Hetti

Miðherji Hauka í Domino's deild karla, Finnur Atli Magnússon fór meiddur út af velli í leik Hauka og Hattar á Egilsstöðum í kvöld eftir aðeins 10 mínútur af leiktíma. Talið er að Finnur hafi meiðst á hné.

 

Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka sagði í samtali við Karfan.is eftir leikinn að talið sé að hnéskelin á vinstra hné hafi farið úr stað og aftur til baka. Finnur virtist geta gengið eftir óhappið en meira er ekki vitað um ástand hans. Ívar bætti við að Finnur færi fljótlega í skoðun og þá skýrist málin.

Fréttir
- Auglýsing -