Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap í dag gegn Valencia í ACB deildinni á Spáni, 98-103.
Tryggvi Snær lék rúmar 13 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 5 stigum, 5 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 vörðum skotum.
Eftir leikinn er Bilbao í 9. sæti deildarinnar með tvo sigra og þrjú töp eftir fyrstu fimm umferðir deildarinnar.