Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons höfðu betur gegn Landstede Hammers í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 90-85.
Á rúmum 10 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær sex stigum, tveimur fráköstum, þremur stoðsendingum, stolnum bolta og vörðu skoti.
Eftir leikinn eru Mons í 10. sæti deildarinnar með tíu sigra og níu töp það sem af er tímabili.