spot_img
HomeFréttirFimm stiga ósigur gegn heimakonum

Fimm stiga ósigur gegn heimakonum

Undir 20 ára lið kvenna mátti þola 5 stiga tap í dag gegn heimakonum í Svíþjóð á Norðurlandamótinu í Södertalje. Íslenska liðið hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum, en í gær lutu þær í lægra haldi gegn Írlandi. Lokaleikur Íslands á mótinu er á morgun kl. 10:30 gegn Danmörku.

Stigahæstar í liði Íslands í leik dagsins voru Agnes María Svansdóttir með 23 stig og Anna Lára Vignisdóttir bætti við 21 stigi. Næst þeim var Hekla Eik Nökkvadóttir með 9 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -