15:36
{mosimage}
(Denis Ikolev verður ekki með Keflavík)
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, segir útlendingamál félagsins vera í góðum gír þrátt fyrir að Úkraínumaðurinn Denis Ikovlev hafi hætt við að koma. Hann er að skoða nokkra leikmenn og ætlar að taka sér góðan tíma í að finna leikmenn fyrir næsta tímabil. Keflavík hafði náð samkomulagi við umboðsmann Ikovlevs sem hafði ekki skrifað undir.
Ikovlev vildi frekar fara til Rússlands þar sem hann fékk mun hærra peningatilboð, eitthvað sem Keflavík átti ekki möguleika á að keppa við.
„Hann er að fara í miklu meiri peninga og ég lái honum það ekki. Ég talaði við strákinn og þetta góður náungi og góður leikmaður," segir Sigurður. www.visir.is