Hamar lagði Fjölni heima í Hveragerði, 88-86, í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi 1. deildar karla. Staðan í seríunni jöfn, 1-1, en næst mætast liðin í Dalhúsum í Grafarvogi komandi föstudag kl. 19:15.
Karfan spjallaði við þjálfara Fjölnis, Fal Harðarson, eftir leik í Hveragerði.