spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaFærir sig um set innan Grikklands

Færir sig um set innan Grikklands

Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson hefur samið við Maroussi í Grikklandi fyrir komandi tímabil, en þangað fer hann frá PAOK sem einnig er í grísku efstu deildinni. Maroussi endaði fyrir neðan Elvar Már og PAOK á liðinni leiktíð í Grikklandi, en þó aðeins einu sæti neðar í deildinni, því níunda og aðeins stigi neðar.

Elvar Már var um áramótin valinn körfuknattleiksmaður ársins á Íslandi á nýjan leik, en hann hefur á síðustu árum leikið í sterkum deildum Evrópu, Frakklandi, Svíþjóð, Litháen og síðast í Grikklandi.

Fréttir
- Auglýsing -