Skallagrímur lagði Hrunamenn í gærkvöldi á Flúðum í fyrstu deild karla, 94-113. Eftir leikinn er Skallagrímur í 4. sæti deildarinnar með 6 stig á meðan að Hrunamenn eru í 7. sætinu með 4 stig.
Karfan spjallaði við Eyþór Orra Árnason leikmann Hrunamanna eftir leik á Flúðum. Eyþór átti fínan leik fyrir sína menn þrátt fyrir tapið, skilaði 14 stigum og 9 stoðsendingum á rúmum 35 mínútum spiluðum í leiknum.