Íslenska karlalandsliðið, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, lék í dag þriðja leik sinn í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Matosinhos í Portúgal. Andstæðingar dagsins voru Rússar, og er skemmst frá því að segja að íslenska liðið var númeri of lítið fyrir sterkt lið Rússa, sem leiddi allan leikinn og vann að lokum 21 stigs sigur, 90-69.
Orri Hilmarsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 17 stig, en tölfræðina úr leiknum má nálgast hér.
Íslenska liðið leikur lokaleik sinn í riðlakeppni mótsins gegn Ungverjum næstkomandi miðvikudag.