Frakkinn Evan Fournier komst í hann krappann í leik Orlando Magic og Indiana Pacers í gærnótt þegar hann komst einn upp í hraðaupphlaup og tróð boltanum. Paul George, hvergi banginn eftir ljótt fótbrot sem hann hlaut fyrir rúmu ári síðan við svipaðar aðstæður, hljóp á eftir Fournier og freistaðist þess að verja tilraun hans. Fournier fipast við þetta og skellur harkalega í gólfið.
Fournier er hins vegar grjótharður og dreif sig upp og hélt leiknum áfram.