Eva Margrét Kristjánsdóttir var nú fyrir skömmu valin íþróttamaður Ísafjarðarbæjar í hófi sem Ísafjarðabær stóð fyrir. Það voru margir frábærir íþróttamenn sem voru samankomnir í þessu skemmtilega teiti og á endann var það Eva Margrét sem varð fyrir valinu. www.kfi.is greinir frá.
Á heimasíðu KFÍ segir einnig:
Eva er vel af þessum tittli komin. Hún er frábær íþróttakona og mikil fyrimynd. Eva hefur sýnst að það er allt hægt þegar viljinn og nennan er fyrir hendi. Það er ekkert sjálfgefið í íþróttum og þarf að hafa mikið fyrir því að verða afreksmaður.
Eva hefur látið vel til sín taka með KFÍ þetta tímabilið með 16,4 stig og 7,0 fráköst að meðaltali í leik í 1. deild kvenna.