Undir 20 ára kvennalæið Íslands lagði Noreg í dag í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje. Leikurinn var nokkuð jafn þrátt fyrir að Ísland hafi verið skrefinu á undan lengst af, en missa hann í framlengingu, sem þær svo klára með glæsibrag, 84-74.
Eva Wium Elíasdóttir var góð fyrir Ísland í leiknum, skilaði 15 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum á tæpum 25 mínútum spiluðum.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil