Þór Akureyri tryggði sig í kvöld í úrslit VÍS bikarkeppninnar með sigri gegn Grindavík í undanúrslitum, 79-75. Þór mun því mæta liði Keflavíkur í úrslitaleik á laugardaginn, en Keflavík lagði Njarðvík fyrr í kvöld í hinni undanúrslitaviðureigninni. Úrslitaleikurinn mun vera sá fyrsti sem Þór fer í síðan 1975, en þá unnu þær sinn eina titil, með sigri gegn KR, 20-16.
Karfan spjallaði við Evu Wium Elíasdóttur leikmann Þórs eftir leik í Laugardalshöllinni.