Keflavík lagði Fjölni í Dalhúsum í dag í öðrum leik átta liða úrslita Subway deildar kvenna, 69-100. Keflvíkingar því með yfirhöndina í einvíginu 2-0 og geta með sigri í næsta leik tryggt sig áfram í undanúrslitin.
Karfan spjallaði við Hallgrím Brynjólfsson þjálfara Fjölnis eftir leik í Dalhúsum.